Viðurkenningar

Tónstofan hlaut viðurkenninguna Múrbrjótinn frá Landssamtökunum Þroskahjálp 1999 fyrir brautryðjandastarf sitt í tónlistarkennslu fatlaðra. Við afhendingu viðurkenningarinnar sagði formaður samtakanna Halldór Gunnarsson m.a.: „Verðlaunagripurinn Múrbrjóturinn vísar til þess slagkrafts sem viðkomandi stofnanir eða einstaklingar búa yfir. Múrbrjótar okkar í dag hafa ráðist að þeim félagslegu múrum sem gjarnan rísa í kringum fatlaða einstaklinga.“

 

Tónstofan fékk Hvatningarverðlaun ÖBÍ árið 2008 í flokknum fyrirtæki. Veitt voru þrenn verðlaun til fyrirtækis, stofnunar og einstaklings, sem þóttu hafa skarað fram úr og endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu. 

 

Tónstofan var tilnefnd til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins 2010 í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar. Í þessum flokki koma allir þeir til greina sem hafa unnið eftirtektarvert starf í þágu menntunar, uppfræðslu eða umönnunar þeirrar kynslóðar sem er að vaxa úr grasi, jafnt einstaklingar sem samtök eða stofnanir.

 

Tónstofa Valgerðar og Bjöllukórinn eru handhafar Kærleikskúlu SLF árið 2010. Um handhafa kærleikskúlunnar segir á vef SLF: „Valgerður hefur með óeigingjörnu starfi sínu gefið fjöldanum öllum af nemendum með sérþarfir kost á að njóta tónlistarnáms og þannig endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu. Bjöllukórinn hefur þau tólf ár sem hann hefur verið starfandi gefið þeim sem í honum eru mikla gleði og ekki síður þeim sem hafa notið þeirrar gæfu að hlýða á hann.“

Hafa samband

Tónstofa Valgerðar
Hátúni 12
105 Reykjavík
S: 561-2288 / 862-2040