Tónlistarskólar á Íslandi 2011

Í landinu eru nú 88 tónlistarskólar. Hjá þeim starfa 892 kennarar og nemendur eru 15.055 talsins. Fyrstu lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla voru sett 1963, en nú starfa skólarnir samkvæmt lögum nr. 75 14. júní 1985 og námskrám sem menntamálaráðuneytið gefur út. Í skólunum eiga nemendur kost á fjölbreyttu tónlistarnámi. Skólarnir gegna miklu hlutverki í menningarlífi viðkomandi byggðarlaga. 
 
Undir einkennisorðinu Tónlistarskólarnir vinna skólarnir saman að ýmsum verkefnum.
 
Dagur Tónlistarskólanna er síðasta laugardag í febrúarmánuði ár hvert.  Þá efna tónlistarskólarnir til árlegrar hátíðar hver á sínum stað. Meðal viðburða má nefna opið hús, tónleika, hljóðfærakynningar og ýmis konar námskeið. Þá heimsækja nemendur einnig aðra skóla, vinnustaði og heilbrigðisstofnanir í þeim tilgangi að flytja tónlist. 
 
Uppskeruhátíð tónlistarskólanna kallast Nótan og er samvinnuverkefni Félags tónlistarskólakennara (FT), Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Samtaka tónlistarskólastjóra (STS). Hver skóli sendir fulltrúa á sameiginlega landshlutatónleika þar sem valin eru atriði til flutnings á hátíðartónleikum undir lok marsmánaðar ár hvert. Nemendum sem skara fram úr eru veittar viðurkenningar fyrir flutning sinn. 

Hafa samband

Tónstofa Valgerðar
Hátúni 12
105 Reykjavík
S: 561-2288 / 862-2040