Tónlistarsálfrćđi
Hvað er tónlistarsálfræði?
Tónlistarsálfræðin fæst við þrjú megin viðfangsefni:1) Þann sem fremur tónlistina (tónlistariðkandann). 2)Tónlistina sjálfa. 3) Hlustandann eða þann sem nýtur tónlistarinnar.
Tónlistarkennsla, tónlistarsérkennsla og músíkþerapía byggir á viðfangsefnum tónlistarsálfræðinnar sem m.a. eru rannsóknir á: Skynjun og úrvinnslu heyrnaráreita, tónnæmi, samspili menningar og tónlistar, tilfinningalegum viðbrögðum við tónlist, notkun tónlistar sem tækis sem beitt er í margvíslegum tilgangi, tengslum tónnæmis og tónlistarfærni við vitsmunaþroska og hreyfifærni, og svona mætti lengi telja. Þekking á þessum fræðum getur aukið færni okkar bæði sem tónlistaruppalanda og skapandi listamanna.
Tónlist er hvorki yfirskilvitleg né dulræn en hún getur verið leyndardómsfull í fjölbreytileika sínum
og áhrif hennar stundum óútskýranleg. Tónlist er flókin mannleg hegðun en við getum heyrt hana, séð hana og fundið, og við getum metið hana á hlutlægan hátt. Um leið og við tölum um tónlist erum við því bæði að fjalla um list og vísindi. Við erum að tala um abstrakt eða óhlutbundið fyrirbæri sem jafnframt er hlutbundið og mælanlegt með tækjum vísindanna.