Starfsfólk
Valgerður Jónsdóttir tonsvj@mmedia.is
Valgerður Jónsdóttir er skólastjóri og ábyrgðaraðili Tónstofunnar. Valgerður lauk píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1980. Árið 1987 lauk hún BM námi í tónmenntakennslu og músíkþerapíu frá University of Kansas og University of Texas Medical Branch, í Bandaríkjunum og hlaut bandarísk starfsréttindi sem músíkþerapisti sama ár (RMT registered music therapist). Vorið 2004 lauk hún meistaraprófi MA í músíkþerapíu frá Norges Musikkhøgskole í Osló. Valgerður varði doktorsritgerð sína: Music-caring within the framework of early intervention. The lived experience of a group of mothers of young children with special needs, participating in a music therapy group við Álaborgarháskóla 7. nóvember 2011.
Valgerður var formaður Félags músíkþerapista á íslandi (Físmús) frá stofnun þess árið 1997 til ársins 2011. Hún er fulltrúi Íslands í The European Music Therapy Confederation (EMTC) og ritstjórnarfulltrúi Íslands fyrir Nordic Journal of Music Therapy .
Valgerður stofnaði Tónstofuna árið 1987 og starfar þar sem tónlistarsérkennari og músíkþerapisti. Hún starfaði sem músíkþerapisti á Barna- og unglingageðdeild LSH frá 1987 til 2009.
Jóna Þórsdóttir jonathor@hive.is
Veturinn 1990 til 1991 vann Jóna sem músíkþerapisti við Heyrnleysingjaskólann í Reykjavík. Á árunum 1991-1992 og 1997-1999 starfaði hún sjálfstætt sem músíkþerapisti í Danmörku á ýmsum stofnunum fyrir fullorðna einstaklinga með sérþarfir og fyrir aldraða með heilabilun. Jóna kenndi tómennt í alþjóðlegum skóla í Zambíu á árunum 1999 til 2004. Hún kenndi öllum aldurshópum og einnig nemendum með sérþarfir. Jóna kom til starfa í Tónstofunni haustið 2005.
Endurskoðandi
Aðstoðarfólk
Skólanefnd