Músíkþerapía

Hvað er músíkþerapía?

Skilgreining Félags músíkþerapista á Íslandi (Físmús) sem var stofnað 14. ágúst 1997.

Músíkþerapía er skipulögð notkun tóna, hljóða og hreyfinga sem beitt er til að auka vellíðan eða endurnýja, viðhalda og þróa andlega og líkamlega heilsu og/eða getu.  Sérstök tón- og hljóðáreiti, eða eiginleikar og eðlisþættir tóna og hljóða, og tengsl sem myndast í tónlistarreynslunni eru notuð af sérfræðingi í þeim tilgangi að ná settum markmiðum í meðferð, kennslu og endurhæfingu fólks sem á við líkamleg, andleg og félagsleg vandamál eða fötlun að stríða.

    Hægt er að skilgreina fræðigreinina músíkþerapíu og starf músíkþerapistans á ýmsa vegu og er engin ein alþjóðlega viðurkennd skilgreining til á þessari fræðigrein.  Hvernig músíkþerapía er skilgreind fer nokkuð eftir þeirri stofnun sem þerapistinn starfar við, þeim kenningum eða aðferðarfræði er þerapistinn starfar eftir og því hlutverki sem hann gegnir.  Mismunandi áherslur eru oft lagðar á mikilvægi þerapistans annars vegar og tónlistarinnar hins vegar í meðferðinni og taka þarf tillit til hvort músíkþerapían sé talin sjálfstætt meðferðartæki eða hjálpartæki í heildarmeðferð skjólstæðings.  Músíkþerapía kemur ekki í stað talkennslu, iðjuþjálfunar, sjúkraþjálfunar eða annarra sérfræða sem beitt er í greiningu og meðferð.  Hún opnar nýjar leiðir og eykur þá möguleika sem fyrir hendi eru, hvort heldur henni er beitt sjálfstætt, sem hjálpartæki, eða í teymi. 

    Í músíkþerapíu er tónlist beitt sem tæki til að hjálpa fólki.  Markmið þjálfunarinnar getur verið að: Efla boðskipti, efla vitsmunaþroska, örva tjáningu tilfinninga, bæta andlega líðan, auka líkamsfærni, auka einbeitingu, og svo framvegis.  Starfsvettvangur músíkþerapista er fjölbreyttur og starfsaðferðir þeirra taka mið af þeim einstaklingi sem unnið er með og þeim skammtíma- og langtímamarkmiðum sem stefnt er að hverju sinni. 

Listi yfir nokkur nýleg doktorsverkefni á þessum vettvangi.

  • The Practice of Music Therapy for Adults with Mental Health Problems.  
  • The Relationship Between Diagnosis and Clinical Method Case Study/Phenomenological Research into Counter-Transference in Music Therapy
  • Clinically Controlled Study on Joint Attention in Autistic Children
  • Quantitative and Qualitative Investigation into the Influence of Receptive Music Therapy with Cancer Survivors
  • The Effects of Song Singing on the Affective Intonation of People with Traumatic Brain Injury
  • Singing Dialogue.  Music Therapy with Persons in Advanced Stages of Dementia.  A Case Study Research Design
  • Enhancing Communication in Girls with Rett Syndrome Through Songs in Music Therapy
  • Song Creations by Children with Cancer - Process and Meaning
  • Randomized Controlled Study into Guided Relaxation for Patients in post Cardiac Surgery Care
  • Music-caring within the framework of early intervention The Lived Experience of a Group of Mothersof Young Children with Special Needs, Participating in a Music Therapy Group

 

 

 

Hafa samband

Tónstofa Valgerðar
Hátúni 12
105 Reykjavík
S: 561-2288 / 862-2040