Innritun
Umsóknarblöð ná nálgast á skrifstofu skólans að Hátúni 12. Einnig er hægt að sækja um skólavist á heimasíðu skólans, með því að senda tölvupóst á netfangið tonsvj@mmedia.is og veita eftirfarandi upplýsingar:
Nafn:
Kennitala:
Lögheimili:
Leikskóli/grunnskóli:
Nafn forráðamanns:
Kennitala forráðamanns:
Heimasími:
Farsími:
Vinnusími:
Netfang:
Aðrar upplýsingar eða athugasemdir:
Upplýsingar um annað nám sem umsækjandi stundar:
Allir nemendur skólans þurfa að sækja um skólavist í Rafrænni Reykjavík, sem er þjónustuver Reykvíkinga á vefnum (líka þeir sem eiga lögheimili utan Reykjavíkur) rvk.is . Umsóknin er gagnvirk og skráist beint í miðlægan gagnagrunn. Í þjónustugáttinni er síðan hægt að fylgjast með stöðu mála, hvort umsóknin hefur verið samþykkt, sett á biðlista, verið hafnað o.s.frv. Allir íbúar Reykjavíkur eldri en 18 ára geta stofnað þjónustugátt á vefsvæðinu. Börn undir 18 ára aldri eru skráð í þjónustugátt foreldra sinna. Foreldrar sækja um fyrir börn sín undir 18 ára aldri. Börn eru skráð hjá því foreldri sem þau hafa lögheimili hjá skv. þjóðskrá. Ítarlegri hjálp er að finna inni í kerfinu, einnig má fá aðstoð með því að hafa samband við Tónstofuna í síma 5612288 eða 8622040.
Það er markmið Reykjavíkurborgar að vefurinn verði öflug þjónustuveita íbúa þar sem hægt verður að senda inn umsóknir, erindi og eiga samskipti við borgina á hvaða tíma sólarhringsins sem er.