Tónlistarsérkennsla

Hvað er tónlistarsérkennsla?

Í tónlistarkennslu felst það markmið að kenna fólki að njóta og að nota tónlist.  Grundvallarmarkmið kennslunnar er fagurfræðilegs eðlis.  Kennslan felst í því að auka þekkingu á tónlist, efla tónnæmi og tónlistarfærni og hafa áhrif á viðhorf fólks til tónlistar.

    Í tónlistarsérkennslu líkt og í hefðbundinni tónlistarkennslu er tónlistin aðalatriðið og nemandinn með sérþarfirnar er hvattur til virkrar þátttöku í tónlistartímum sem hafa að markmið að auka þekkingu hans og tónlistarfærni í samræmi við getu.  Í sérkennslunni er námskráin einstaklingsbundin, sérsniðin að þörfum hvers og eins.  Það þýðir að námsefnið, tilhögun námsins, aðferðafræðin og markmið eru löguð að þörfum hvers einstaklings.

    Nemendur með sérþarfir eru þeir einstaklingar sem víkja frá viðmiði um “eðlilegan” líkamlegan eða andlegan þroska að meira eða minna leyti og þarfnast því sérstakra kennslufræðilegra úrræða eða breyttra viðhorfa til námsframvindu.  Námsvandi þessara nemenda getur m.a. stafað af: Hreyfitruflunum, erfiðleikum við að samþætta skynáreiti, sjónskynjunarvanda, heyrnarskynjunarvanda, erfiðleikum er tengjast tjáningu, erfiðleikum er tengjast skertum vitsmunaþroska, erfiðleikum er tengjast minni, erfiðleikum er tengjast andlegri líðan.

    Á rúmlega 25 ára starfsæfi hef ég í æ ríkari mæli litið á tónlistarkennslu, tónlistarsérkennslu, tónlistarsálfræði og músíkþerapíu sem greinar á sama meiði.  Greinar sem nýta tónlist, fást við mannlega hegðun og sem skarast á ýmsa vegu. Kennsla getur verið þerapautísk og í þerapíu getur falist kennsla.  Músíkþerapistar reyna t.d. að hafa að leiðarljósi að allir þarfnast fagurfræðilegrar upplifunar og fyrir einstakling með sérþarfir getur velgengni eða árangursrík þátttaka í tónlist styrkt sjálfsmyndina svo dæmi sé tekið, þ. e. verið þerapautísk.

 

 

  

Hafa samband

Tónstofa Valgerðar
Hátúni 12
105 Reykjavík
S: 561-2288 / 862-2040