Haustönn 2011
Sjötíu nemendur voru skráðir í skólann í upphafi annarinnar.
Til lað auðvelda rekstur Tónstofunnar og til að fyrirbyggja misskilning sem oft hefur komið upp varðandi skólagjöldin, lagði skólanefndin til að dregið yrði úr sveigjanlegu innheimtufyrirkomulagi liðinna ára og að kennslugjöldin yrðu innheimt með fjórum jöfnum greiðslum á gjalddögunum: 1. október, 1. desember, 1. febrúar og 1. apríl. Jafnframt voru kennslugjöld skólaársins 2011-2012 hækkuð um 15%, en þau hafa verið óbreytt í fjöldamörg ár.
Þjónustusamningur á milli Tónstofunar og skóla- og frístundasviðs (SFS) Reykjavíkurborgar hefur ekki verið undirritaður. Samningurinn var sendur skólunum í lok desember til skoðunar. Vonast er til að sáttir samningsaðilar undirriti hann í upphafi vorannar 2012.
Samstarfið við Öskjuhlíðarskóla/Klettaskóla heldur áfram okkur til mikillar ánægju. Við höfum fengið til eigin afnota kennslustofuna Höfða á lóð skólans. Jóna Þórsdóttir kennir í Höfða mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga fyrir hádegi og er mjög ánægð með aðstöðuna. Tónstofan keypti hljóðfæri af ýmsu tagi til að hafa í Höfða og hafa hljóðfærin vakið mikla hrifningu að sögn Jónu. Tuttugu og einn nemandi Tónstofunnar sækir tíma sína í Höfða.
Bjöllukórinn fór í æfingabúðir að Sólheimum í Grímsnesi helgina 10. til 11. september. Þar leið okkur mjög vel. Við æfðum í kirkjunni, gengum um svæðið með leiðsögn og skoðuðum listasmiðjur, borðuðum góðan mat, hvíldumst vel, lékum okkur og lékum við guðsþjónustu.
Þriðjudaginn 11. október lék Bjöllukórinn við afhendingu Kærleikskúlunnar 2011, í Listasafni Reykjavíkur. Leifur Leifsson er handhafi Kærleikskúlunnar 2011.
http://www.youtube.com/watch?feature=endscreen&v=6XtUTpC_i6g
http://www.youtube.com/watch?v=UUu7rQhJluk&feature=related
Mánudaginn 7. nóvember varði undirrituð doktorsritgerð sína við Aalborg Universitet. Heiti rannsóknarinnar er „Music-caring within the framework of early intervention. The lived experience of a group of mothers of young children with special needs, participating in a music therapy group“. Að loknum klukkutíma fyrirlestri var 90 mínútna fyrirspurnartími frá þremur andmælendum og í framhaldi af því var spurningum svarað frá áheyrendum úr sal. Viðfangsefni rannsóknarinnar byggði á tuttugu ára starfsreynslu undirritaðrar sem músíkþerapista í Tónstofu Valgerðar og á Barna- og unglingageðdeildinni.
Sunnudaginn 27. nóvember lék Bjöllukórinn í aðventuguðsþjónustu í Laugarneskirkju. Laugardaginn 10. desember voru tvennir jólatónleikar haldnir í kirkju Óháða safnaðarins, þar sem fram komu á fjórða tug nemenda. Sunnudaginn 11. desember lék Bjöllukórinn ásamt söngkonunni Möggu Stínu, „Hátíð fer að höndum ein“ og „Nóttin var sú ágæt ein“ í Ráðhúsinu við opnun Jólaskógar. Fimmtudaginn 15. desember voru jólatónleikar Tónstofunnar í Klettaskóla. Sunnudaginn 18. desember lék Bjöllukórinn á jólaballi nemendafélagsins Tuma í Kennaraháskólanum.
Síðasti kennsludagur haustannar var þriðjudagurinn 20. desember.
Súsanna Ernst Friðriksdóttir styrkti Tónstofuna með höfðinglegri jólagjöf í desember. Færum við henni hjartans þökk fyrir einstaka gjafmildi og hlýhug.
Gísli Björnsson, Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og undirrituð léku fyrir Lionsklúbbinn Þór föstudaginn 16. desember við mjög góðar undirtektir. Fengum við fána klúbbsins að gjöf og loforð um stuðning í upphafi vorannar. Þökkum við þeim innilega fyrir stuðninginn.
Kæru nemendur og forráðamenn, um leið og við þökkum ánægjulegar samverustundir á árinu sem er að líða, óskum við ykkur gleðilegrar jólahátíðar og heillaríks komandi árs.