Framtíðarsýn

 
Framtíð Tónstofunnar ræðst af því rekstraröryggi sem hún býr við. Þegar sérstaða Tónstofunnar verður virt (sérkennsla) og nemendahópurinn skilgreindur með öðrum hætti en nú er gert væri mögulegt að fjölga kennurum og stytta biðlista. Vöxtur í átt að draumsýninni verður sennilega hægur líkt og þróun Tónstofunnar. Draumsýnin er skóli sem skilgreina mætti sem listamiðstöð, þar sem boðið er upp á einstaklings- og hóptíma, kór- og hljómsveitarstarf af ýmsu tagi, blandað listnám, rannsóknir og þróunarstarf -skóli, sem starfar í tengslum við listamenn, leikskóla, grunnskóla, almenna tónlistarskóla, Listaháskólann, Háskóla Íslands o. s. frv.
     Tónstofan hefur mótast af þeim sem til hennar leita; engum er vísað frá svo fremi að tímar séu lausir. Kenslan er sniðin að þörfum, aldri og þroska eins og áður hefur komið fram. Fjölbreyttir kennsluhættir hafa að leiðarljósi að ná hámarksárangri og viðhalda áhuga og gleði nemendanna. Það er von undirritaðrar að unnið hafi verið gott starf í Tónstofunni og að svo verði áfram. Einstaklingurinn má aldrei týnast í umfangi starfsins.
     Tónstofan hefur nú starfað í um 25 ár. Með Foreldra- og styrktarfélagið í fararbroddi var unnið að því að fá viðurkenningu menntamálaráðuneytisins á starfsemi Tónstofunnar. Sá áfangi náðist árið 2005 og er Tónstofan viðurkenndur tónlistarskóli. Við núverandi aðstæður geta rúmlega sjötíu nemendur sótt skólann. Biðlistinn lengist og eru nú um fimmtíu nemendur á biðlista. Það er von aðstandenda Tónstofunnar að í náinni framtíð verði hægt að koma til móts við alla þá sem óska eftir og þarfnast tónlistarsérkennslu. En til að það geti orðið þarf eins og áður segir að fá fleiri kennara (tónlistarsérkennara, músíkþerapista) til starfa og að bæta núgildandi þjónustusamning menntaráðs og Tónstofunnar.
    

Hafa samband

Tónstofa Valgerðar
Hátúni 12
105 Reykjavík
S: 561-2288 / 862-2040