Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar

 
Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar var stofnað haustið 2000. Meginmarkmið þess var að efla Tónstofuna og stuðla að því að hún yrði sjálfstæður tónlistarskóli sem nyti sömu fyrirgreiðslu og aðrir tónlistarskólar en þar sem nemendur með sérþarfir hefðu forgang. Í því sambandi vísar félagið til laga um tónlistarskóla og laga um jafnrétti fatlaðra til náms. Staðreyndin er sú að í Tónstofunni hafa verið nemendur sem ekki hafa átt greiðan aðgang að tónlistarskólum landsins og nemendur sem vísað hefur verið frá námi þegar sýnt þótti að þeir uppfylltu ekki kröfur um námsárangur eða þegar einstakir kennarar gáfust upp af því að sérþekkinguna skorti.
     Valgerður Jónsdóttir hefur unnið einstakt og ómetanlegt brautryðjandastarf á þeim árum sem liðin eru frá því Tónstofa hennar tók til starfa (1986). Þar hefur hún annast kennslu nemenda með mjög mismunandi fatlanir og náð ótrúlegum árangri eins og allir geta borið um sem hlýtt hafa á nemendatónleika Tónstofunnar. Námið er aðlagað þörfum og þroska hvers einstaklings. Þeir einstaklingar sem hér um ræðir eiga sér ekki volduga talsmenn. Því er brýnt að allir áhugamenn taki höndum saman og standi vörð um Tónstofu Valgerðar og þá starfsemi sem þar fer fram. Haustið 2005 var Jóna Þórsdóttir músíkþerapisti ráðin til Tónstofunnar og eru þar nú tvö stöðugildi kennara ásamt hálfri stjórnunarstöðu.
     Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar gegnir hlutverki skólanefndar.  Í henni sitja:
Rut Ríkey Tryggvadóttir, formaður
Gerður Steinþórsdóttir, varaformaður
Gunnhildur Gísladóttir, gjaldkeri
Þorleifur Hauksson, ritari
Sólborg Bjarnadóttir, meðstjórnandi
Fulltrúi kennara er Valgerður Jónsdóttir
 
Lög Foreldra- og styrktarfélags Tónstofu Valgerðar
 
1. gr.
Félagið heitir Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar. Lögheimili og varnarþing félagsins er í Reykjavík. Stjórn félagsins gegnir hlutverki skólanefndar Tónstofu Valgerðar.
 
2. gr.
Markmið félagsins er að vera stuðningsaðili í öllu starfi skólans.
 
3. gr.
Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að:
a. Veita skólastjórnendum aðhald og hollráð í innra og ytra starfi skólans.
b. Stuðla að kynningu á starfsemi skólans.
c. Efla samkennd meðal nemenda og foreldra/forráðamanna.
 
4. gr.
Í félaginu eru foreldrar/forráðamenn nemenda Tónstofunnar. Velunnarar Tónstofunnar sem vilja leggja starfinu lið geta einnig orðið félagsmenn.

5. gr.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal haldinn í október árlega. Aðalfund skal boða bréflega með a.m.k. viku fyrirvara. Fundurinn telst lögmætur sé rétt til hans boðað. Dagskrá aðalfundar tekur mið af almennum lögum um fundarsköp.
 
6. gr.
Stjórn félagsins skal kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Hún skal skipuð fimm mönnum. Stjórnin skiptir með sér verkum. Reikningsár félagsins er frá 1. september til 31. ágúst.
 
7. gr.
Félagsgjald skal ákvarðast af aðalfundi og innheimtast að hausti. Stjórnin sér um fjáröflunarleiðir fyrir félagið.
 
 

Hafa samband

Tónstofa Valgerðar
Hátúni 12
105 Reykjavík
S: 561-2288 / 862-2040