Velkomin á heimasíðu Tónstofunnar
Í Tónstofunni fer fram tónlistarkennsla fyrir nemendur sem geta ekki tileinkað sér hefðbundna tónlistarkennslu.Tónstofan er eini tónlistarskólinn á landinu þar sem nemendur með sérþarfir njóta forgangs. Öll kennslan tekur mið af forsendum og þörfum hvers einstaks nemanda. Nemandi í Tónstofunni getur lagt stund á hefðbundið tónlistarnám. Hann getur einnig notið fjölþættrar tónlistarkennslu og þjálfunar sem beinist að því að efla tónnæmi hans og tónlistarfærni, bæta líðan hans og veita sköpunarþörfinni útrás. Í þessu felst sérstaða Tónstofu Valgerðar um leið og hún fylgir þeim megin markmiðum sem eru skilgreind í aðalnámskrá tónlistarskóla og skólanámskrá Tónstofunnar.
Forráðamenn Tónstofunnar og nemendur hennar þakka kærlega öllum þeim sem sýnt hafa Tónstofunni velvilja og stuðning á liðnum árum.